Hann á afmæli hann Styrmir

Gamla barnið mitt, hann Styrmir Bolli, er 36 ára í dag. Mér finnst ótrúlegt að hugsa til þess að ég var bara 19 ára þegar ég eignaðist hann. Hafði svo til engin afskipti haft af smábörnum og ég vissi það eitt að bleian átti að fara á þann endann sem öskraði ekki.

Sem betur fór fyrir þessa reynslulausu móður var Styrmir algjör engill frá fyrstu stundu. Einu áhyggjurnar sem þurfti að hafa af honum voru að gleyma honum einhvers staðar, hann var alltaf eins og ljós. Svo var hann líka fallegastur af öllum.

Svo varð hann eldri og bara fallegri með hverju árinu. Ég man eftir því að á febrúardegi þegar hann var 17-18 ára hringdi dyrabjallan. Ég fór niður og þá var þar leigubílstjóri með eina rauða rós til Styrmis. Þetta endurtók sig 7 eða 8 sinnum og ég var farin að halda að ég væri í falinni myndavél eða einhverju hrekkjabragði. Þegar Styrmir kom loksins heim og fór að opna kortin, sem ég hafði stillt mig um að opna af ofumannlegum viljastyrk, kom í ljós að þetta var út af Valentínusardeginum. Ég held að þetta hafi verið í fyrsta eða annað skiptið sem eitthvað var gert úr honum hér og þetta datt mér ekki í hug.

Til hamingju með daginn, mömmusinnardúlludúskur, ég vona að þú fáir margar rauðar rósir í tilefni dagsins.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Til hamingju með daginn og soninn

Hrönn Sigurðardóttir, 2.7.2009 kl. 20:45

2 Smámynd: Ragnheiður

til hamingju með "gamla" barnið

Ragnheiður , 2.7.2009 kl. 21:11

3 identicon

Til hamingju með soninn Helga mín, eigðu gott og ljúft kvöld og ljúfan morgun dag.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 23:17

4 Smámynd: Jenný Anna Baldursdóttir

Til hamingju með soninn.

Jenný Anna Baldursdóttir, 2.7.2009 kl. 23:21

5 Smámynd: Rebbý

til lukku með frumburðinn

Rebbý, 3.7.2009 kl. 00:06

6 Smámynd: Sigrún Jónsdóttir

Til hamingju með hann Styrmi þinn

Sigrún Jónsdóttir, 3.7.2009 kl. 07:29

7 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Til hamingju með pollann ekki lítur þú nú út fyrir að eiga 36 ára dreng.
Knús kveðjur
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 5.7.2009 kl. 14:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Helga Magnúsdóttir

Höfundur

Helga Magnúsdóttir
Helga Magnúsdóttir
Höfundur er prófarkalesari, eiginkona, mamma, amma, kattakelling og elskar bækur.
Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • ...elga_517475
  • ...elga_517474
  • ...elga_517473
  • Helga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 8
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 8
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband