Nostalgía dauðans

Við erum saman í frænkuklúbbi nokkrar, reyndar erum við bara fjórar eftir því ein er látin og tvær fluttar úr landi.

Í einu svona frænkuboði dró móðursystir mín fram heilu haugana af gömlum "slæds" myndum. Við skelltum upp græjunum og fórum að horfa. Það var jesúsað sig í bak og fyrir hvað við hefðum nú verið mjóar og undurfagrar, hvað þessi kjóll fór mér alltaf betur en eigandanum og svona upphrópanir og skellihlátur fylgdi sýningunni.

En það var fleira en íðilfagrar frænkur á þessum myndum. Þarna var nefnilega að finna myndir af óteljandi fyrrverandi eiginmönnum, kærustum og hjásvæfum. Það var líka alveg merkilegt hvað þeir höfðu verið fagrir í denn, nú orðnir sköllóttir með ístru. Þegar við vorum búnar að skemmta okkur yfir þessu lengi kvölds fannst svo nafn á myndasafnið. Vitanlega X-files.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Hrönn Sigurðardóttir

Þetta eru bestu kvöldin! Ég fór fyrir einhverjum árum með allar slidesmyndir sem ég fann, ásamt slidesmyndavél á svona svipað kvöld fyrir einhverjum árum! Það var ótrúlega skemmtilegt!

Einmitt þetta! Allar þessar upphrópanir - Alveg!! Gvöð er þetta ég??!!??

Hrönn Sigurðardóttir, 11.5.2009 kl. 22:58

2 Smámynd: Eygló

Haha.  Ætla að nota þetta með "X-files"

Eygló, 11.5.2009 kl. 23:44

3 Smámynd: Ragnheiður

hehe ekki alveg að sálast úr hugmyndaleysi hehehe...gott að sjá þig hér

Ragnheiður , 12.5.2009 kl. 00:17

4 Smámynd: Guðrún Emilía Guðnadóttir

Flott nafn. Það er alveg æðislega gaman að skoða þessar gömlu myndir, en sumar eiga nú bara heima í The trach, ég er einmitt núna að skoða og sortera gamlar frá mömmu, á að gefa þær á ljósmyndasafnið í Reykjavík, en er aðeins að bíða með það.
Knús kveðjur
Milla

Guðrún Emilía Guðnadóttir, 12.5.2009 kl. 08:05

5 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Hahaha EX-files góð hugmynd. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 12.5.2009 kl. 10:34

6 identicon

HEHEHE. FYNDIÐ BARA. SEGI ÉG FYRIR ÞÁ SEM ÞOLA EKKI SVONA FYNDNI! Hafðu það sem best.

Valgeir Matthías Pálsson (IP-tala skráð) 12.5.2009 kl. 20:08

7 Smámynd: Sigrún Þorbjörnsdóttir

X-files! Alveg brilliant

Sigrún Þorbjörnsdóttir, 14.5.2009 kl. 10:08

8 Smámynd: Ólöf Jóhanna Pálsdóttir

Alltaf gaman að skoða gamlar myndir og rifja upp liðina stund. Góð hugmynd.

Ólöf Jóhanna Pálsdóttir, 19.5.2009 kl. 13:31

9 Smámynd: Hildur Helga Sigurðardóttir

Mér og mínum vinkonum finnst alveg stórskrýtið að karlkyns jafnaldrar okkar verða kallalegri með hverju árinu  -meðan við stöndum í stað !

Hildur Helga Sigurðardóttir, 21.5.2009 kl. 16:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Helga Magnúsdóttir

Höfundur

Helga Magnúsdóttir
Helga Magnúsdóttir
Höfundur er prófarkalesari, eiginkona, mamma, amma, kattakelling og elskar bækur.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Nýjustu myndir

  • ...elga_517475
  • ...elga_517474
  • ...elga_517473
  • Helga

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 27
  • Frá upphafi: 58633

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 27
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband